Einstaklingar og hópar geta bókað grunnnámskeið í þeim skotgreinum sem iðkaðar eru hjá félaginu.
Námskeiðin fara fram á skotæfingasvæði félagsins við Rjúpnagerði undir öruggri stjórn leiðbeinenda og þjálfara félagsins.
Námskeiðin eru góður grunnur fyrir þá sem vilja sækja vikulegar nýliða æfingar félagsins.
Minnum á að þátttakendur á aldrinum 15-18 ára þurfa skriflegt leyfi foreldra til þátttöku.
Hægt er að hafa samband við skrifstofu Markviss (www.skotf.markviss@gmail.com)og fá eyðublað til útfyllingar,einnig eru þau aðgengileg á æfingasvæði félagsins.
Verkleg skotvopnanámskeið.
Verkleg námskeið eru bókuð í framhaldi af bóklega hluta námskeiðsins inn á www.ust.is
Skotfélagið Markviss sinnir verklega hluta skotvopnanámskeisins í samvinnu við Skotveiðifélag Íslands (skotvís) og ríkislögreglustjóra.
