Aðalfundur Skotf.Markviss 2026 verður haldinn laugardaginn 14 febrúar kl.14.00 í húsnæði Sportvíkur að Ennisbraut 1.
Dagskrá samkv.lögum félagsins.
Framboð til stjórnar skulu berast sitjandi stjórn skriflega eða með rafrænum hætti á netfang félagsins (skotf.markviss@gmail.com) minnst viku fyrir boðaðan fund.
„5.gr.
Stjórn félagsins skipa 5 menn: Formaður, ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur.
Stjórn skal kosin á aðalfundi félagsins ár hvert.
Árlega skal kosið um formann og 2 stjórnarmenn. Stjórnarmenn aðrir en formaður skulu kosnir til tveggja ára í senn, gjaldkeri og meðstjórnandi annað árið, ritari og meðstjórnandi hitt. Þegar stjórnar-menn aðrir en formaður hafa setið í stjórn fjögur kjörtímabil samfellt mega þeir ekki vera í framboði til endurkjörs minnst eitt kjörtímabil, Þó með þeirri undantekningu að berist ekki framboð til stjórnar er þeim heimil áframhaldandi stjórnarseta. Framboð til stjórnar skal berast sitjandi stjórn skriflega eða rafrænt minnst viku fyrir aðalfund. Þá skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara ásamt tveimur varamönnum í stjórn. Á aðalfundi félagsins er kosið í þær nefndir sem fyrirhugað er að starfi fram að næsta aðalfundi.
6.gr.
Aðalfund skal halda eigi seinna en aðra helgi í febrúar ár hvert og félagsfundi svo oft sem stjórn ákveður ,eða ef skrifleg ósk þess efnis kemur frá eigi færri en fimm félagsmönnum.Boða skal til aðal-fundar með minnst tveggja vikna fyrirvara og er hann lögmætur sé löglega til hans boðað, s.s með raf-rænum hætti, óháð því hve margir sitja fundinn. Kjörgengi hafa þeir félagsmenn sem skuldlausir eru við félagið og eru lögráða á þeim degi sem aðalfundur fer fram, öðrum skuldlausum félögum er heimil áheyrn„
